Ásabraut 55, 245 Sandgerði
64.900.000 Kr.
Raðhús
3 herb.
135 m2
64.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2022
Brunabótamat
0
Fasteignamat
42.150.000

Ásberg fasteignasala kynnir;

Ásberg fasteignasala kynnir nýtt raðhús við Ásabraut 55, Sandgerði Suðurnesjabæ. 

Nýtt fjögra herbergja miðjuraðhús með innbyggðum bílskúr, fullbúið.
Raðhúsið er timburhús, byggt árið 2022, húsið skiptist í 109,2 m² íbúð og bílskúr 25,8 m² samtals 135 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, eldhúsi, þrjú svefnherbergi/geymsla, baðherbergi, þvottahús og bílskúr með geymslulofti. 

Nánari lýsing:
Anddyri með fataskáp, þaðan er innangengt í bílskúr.  
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. 
Eldhús er með innréttingu frá  spanhelluborð og stálvaskur, ofn í vinnuhæð, uppþvottavél og ísskápur/frystir í innréttingu.
Útgengt er úr alrými í garð. 
Þrjú svefnherbergi/geymslu, öll með fataskápum. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Handlaug og blöndunartæki eru í borði baðinnréttingar.
Vegghengt salerni, handklæðaofn og vönduð blöndunartæki í sturtu. 
Þvottahús með rúmgóðri innréttingu, gert er ráð fyrir tveimur vélum í vinnuhæð. Stálvaskur í borði.
Allar innréttingar eru frá HTH og innihurðar frá Parka.
Hreinlætis og blöndunartæki eru af viðurkenndri gerð frá Tengi og Byko (Grohe, Mora).
Bílskúr með ca. 10 m² geymslulofti. 
Innfelld lýsing í öllum rýmum íbúðar.
Öll rými eru hvítmáluð. 
Gólfefni; Flísar, Sunstone Alof/loki á anddyri og baðherbergi frá Parka. Harðparket, Colorado Oak frá Parka á alrými og svefnherbergjum.
Epoxy Kvarts á gólfi í bílskúr og þvottahúsi. 
Gólfhiti er í allri eigninni, handklæðaofn á baði. Gólfhiti er ísteyptur í botnplötu ásamt neysluvatnslögnum.

Húsið er timburraðhús á einni hæð á steyptum undirstöðum. 
Útveggir eru klæddir með láréttri fínbáru frá Áltak og þakkantur með sléttri álklæðningu og flasningu.
Þak er hefðbundið, klætt með aluzink þakstáli og lokað með kjöl og flasningum. Þakhalli er 14°.
Gluggar og hurðir eru ARLA frá Arlanga, hvítir álklæddir timburgluggar og hurðir.
Bílskúrshurð er frá FrontX og með bílskúrshurðaropnara. Lóð er fullfrágengin með torfi og bílastæði/inngangur steypt plan með hitalögnum.
Dren er lagt umhverfis húsið og tengt við skolp. Eignin afhendist með sorpskýlum samkvæmt byggingareglugerð. Bílastæði er fyrir tvö ökutæki og eitt í bílskúr.
Í rafmagnstöflu er gert ráð fyrir möguleika á hleðslustöðvum rafbíla.
Glæsileg ný eign í grónu hverfi og stutt er í alla almenna þjónustu.

Sjá skilalýsingu hér.

Allar nánari upplýsingar veita sölumenn Ásbergs í síma 421-1420 eða á skrifstofu að Hafnargötu 27. www.asberg.is  [email protected] 

Jón Gunnarsson, löggiltur fasteignasali í síma 894-3837, [email protected]
Þórunn Einarsdóttir síma 898-3837,
Jón Gunnar Jónsson  sími 849-3073 [email protected]

Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% til 1,6 % af heildarfasteignamati (0,4 % sem fyrstu kaupendur greiða).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. kr 2.700 af skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – Fer eftir lánastofnun hverju sinni.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 49.600 auk vsk. sbr. kauptilboð.
Fasteignakaupalög nr. 40/2002 leggja ríka skoðunarskyldu á kaupendur. Við brýnum því fyrir kaupendum að skoða fasteignir vel fyrir tilboðsgerð og leita sér viðeigandi aðstoðar sérfræðinga þegar ástæða þykir til.



 

Jón Gunnarsson Lgf  Fasteigna- og skipasali  Sími 894-3837
Þórunn Einarsdóttir Fasteigna- fyrirtækja og skipasali Sími 898-3837
Jón Gunnar Jónsson Fasteigna- og skipasali Sími 849-3073 

Vantar allar eignir á skrá. Frítt sölumat.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.