Ásberg fasteignasala kynnir einbýlishús með bílskúr við Selsvellir í Grindavík. Skv. Fasteignaskrá Íslands þá er húsið byggt árið 1979 og er steypt. Íbúðin er 113 + 18 fm sólhús = 131 fm að stærð og bílskúr 49,6 fm, samtals heildarstærð 180,6 fm.
Lýsing eignar: Anddyri með flísum á gólfi og fatahengi, hitalögn í gólfinu. Hol og gangur með plast parket á gólfi. Stofa með plast parket á gólfi, gengið niður um eina tröppu í 18 fm sólstofa sem er ekki inn í stærð hússins, rennihurð út á lóðina úr sólhúsi. Eldhús með bráða byrgðar innréttingu, og málað gólfið. Hjónaherbergi, plast parket á gólfi, fataskápur sem er laus. Þrjú barnaherbergi með plast parket á gólfi. Baðherbergi með flísar á gólfi, hornbaðkar og flísaplötur á veggnum við baðkarið þar sem sturtuhengið er, innrétting úr kirsuberjavið. Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu, hurð út á baklóð. Það er gólfihiti í anddyri og sólhúsinu. Nýlegar eikar innihurðar í húsini. Loft í stofu, eldhúsi og gangi klætt með panel. Þakjárn er gamalt á húsinu en búið að skipta um þakkant. Búið að skipta um alla glugga nema í eldhúsi en þeir eru til staðar, einnig búið að skipta um útihurðar. Það er forhitari á miðstöðvarkerfinu.